You don´t come after Cardi B.!

0
3440

Það er enginn sem svarar betur fyrir sig ef hún þess þarf, en Cardi B. Hún birti á dögunum myndband af sér syngja hástöfum heima við lagið sitt WAP, sem olli miklu fjaðrafoki þegar það kom út vegna textans sem er í grófari kantinum.

Allt í einu sést Kultur litla, 2 ára dóttir hennar, koma hlaupandi fyrir hornið, og Cardi grípur símann sinn, segir: ,,oh no no no no“ og slekkur á laginu.

Twitter fór á flug og skapaðist umræða þar, og fannst fólki það skrýtið að hún gæti ekki spilað WAP fyrir dóttur sína, en henni finndist í lagi að dætur annara hlustuðu.

And Cardi came for it! Hún skaut fast tilbaka og sagðist svo sannarlega ekki vera Nickelodeon barnastjarnan Jo Jo Siwa. Hún væri ekki að búa til tónlist fyrir börn og að foreldrar væru ábyrgir fyrir því hvað þeir leyfðu börnunum sínum að hlusta á. Cardi sagðist vera mjög mikil kynvera, en alls ekki nálægt barninu sínu og með þessu væri hún að taka ábyrgð á því hverju hún hleypir í eyru Kultur litlu.

This Latina Gets A Ton Of Hate, But She Always Comes Through With The Most  Savage Clapbacks

Og vitiði! Ég er sammála. Cardi má bara alveg syngja um það sem hún vill, og hlífa Kultur fyrir því á sama tíma.