Það ætlaði allt um koll að keyra í gær þegar aðdáendur Harrys og Meghan fengu fréttir af því að bíll Elísabetar drottningar hefði sést keyra um götu Windsor stutt frá heimili Harry og Meg.
Meghan sagði í janúar að von væri á barninu í lok apríl, byrjun maí, en eins og ég hef áður sagt, veit enginn nákvæmlega hvenær settur dagur er.
Vitað er að Meghan ætlar að eignast barnið á heimili þeirra Harrys í Frogmore, en ekki á spítala. Vill hún einnig hafa sem minnst af starfsfólki hallarinnar viðstatt. Fókusinn er á Harry og Doris, móður Meghan- ásamt fæðingarteyminu.
Einnig hefur Harry látið hafa það eftir sér að mögulega muni þau ekki tilkynna strax um fæðingu barnsins, heldur njóta tímans saman….áður en þau setja heiminn og paparazzi ljósmyndara á hvolf. Voru aðdáendurnir því á yfirsnúning í gær eftir að sást til drollunnar á sveimi- var Ella á leið að skoða nýfætt barnið, eða bara í casual ömmuheimsókn?
Harry átti að fara til Hollands í vikunni, en von var á honum þangað 8 og 9 maí, en hann frestaði þeirri ferð óvænt- og þykir það vera stórt merki um að eitthvað sé byrjað að gerast hjá Meghan.
Meghan, if you read this. Can you please pop the baby out. You have already been pregnant for 3 years (feels like it).
Er barnið fætt og þau heima að hafa það notó, er Meghan farin af stað í fæðingu, búin að missa vatnið…eða eru bara allir slakir að horfa á Netflix í Frogmore?
Vitiði hvað ég held- ég held að barnið sé fætt! Þið heyrðuð það fyrst hér!
Ekki missa af nýjasta IGTV- ,,Hollywood Fréttir Með Evu Ruzu” sem dettur inn fljótlega!