Kim og Kanye eru margra milljón dollara virði, og eru powergoldencouple…en þau gefa reglulega tilbaka til samfélagsins.
Það nýjasta hjá þeim er að henda upp svokölluðum popup básum víðsvegar um landið og selja Yeezy skó, ekki ósvipað eins og börn gera gjarnan í USA og selja límonaði, eða tombólurbásar hérna á Íslandi.
En þau hentu þessu verkefni upp í gær, föstudag, í samstarfi við Adidas, og þar selja þau áður óséða Yeezy skó til styrktar geðheilbrigðismálum. Öll K-fam var að sjálfsögðu mætt til að henda fyrsta básnum upp í Hidden Hills í Kaliforníu.
Ég veit nú ekki hvort að skórnir eru seldir á límonaði/tombólu verði, og verður forvitnilegt að sjá hvernig þetta mun fara fram hjá þeim. Mikill æsingur hefur alltaf myndast þegar Yeezy skór fara í sölu. Ætli öryggisgæsla verði ekki mikil í kringum þessar sölur, þrátt fyrir tombólulookið.
Þið fáið fleiri fréttir af frægum í instastories hjá mér!